Núna þurfum við að fara að ganga frá flugi til Álaborgar í sumar í æfingar- og keppnisferðina sem verður farin síðustu helgina í ágúst.
Flogið verður út miðvikudaginn 24. ágúst og flogið heim 31. ágúst. Flugið kostar 55.481 kr. á mann. Æfingarbúðarhelgin kostar um 15þ á mann, þ.e.a.s. frá föstudegi til sunnudags. Við munum gista frítt hina dagana en gera þarf ráð fyrir uppihaldi.
Látið okkur vita sem fyrst hvort að þið hafið áhuga á að koma með eða ykkar börn. Þessi ferð er aðeins ætluð fyrir 12 ára og eldri nema í fylgd forráðamanna.
Kv.
Sportkarate